Neytendastofa fellst á kröfu FÍB að skoða gjaldtöku á bílastæðum

Eins og fram hefur komið óskaði Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, eftir aðgerðum af hálfu Neytendastofu vegna ófremdarástands og græðigisvæðingu við gjaldtöku á bílastæðum. Þórunn Anna Árnadóttir, forstjóri Neytendastofu, staðfesti í kvöldfréttum Stöðvar 2 að stofnunin hefði fallist á kröfu FÍB að skoða málið.

Þórunn Anna sagði í viðtalinu við Stöð 2 að Neytendastofa gæti helst gert athugasemdir við upplýsingagjöfina, hvort merkingar séu með skýrum hætti um það gjald sem innheimt er og hvaða aðili sé að gera það í hvert skipti. ´

Gætum bannað háttsemina ef ástæða er til

,,Þetta mál er viðamikið eins og við vitum og margir aðilar koma að því. Í framhaldinu gætum við tekið ákvörðun þar sem við myndum bannað háttsemina ef ástæða er til eða gera kröfur um skýrari merkingar,“ sagði Þórunn Anna Árnadóttir forstjóriNeytendastofu.

FÍB hefur bent á vaxandi græðgisvæðingu á bílastæðum í einkaeigu, þar sem farið er að innheimta háar fjárhæðir fyrir afnot bílastæða allan sólarhringinn. Og eftir því sem þrengir að bílastæðum í miðborg Reykjavíkur hækka bílastæðagjöldin. Í bílakjallara Hafnartorgs kostar t.d. hver klukkutími 660 kr og vangreiðslugjald er komið í 7.500 kr.

Í kvörtun FÍB er dæmi tekið af bíleiganda sem var krafinn um vanrækslugjald þrátt fyrir að hafa þá þegar verið búinn að borga fyrir stæðið. FÍB telur innheimtufyrirtæki bílastæða varpa ábyrgð af óskýrleika í greiðsluöppum með ósanngjörnum hætti á herðar neytenda. Fjölda félagsmanna í FÍB hefur haft samband til að kvarta undan vanrækslugjöldum sem þeir fá vegna þess að bílastæði óskyldra aðila liggja hlið við hlið og auðvelt að ruglast á þeim.

Í bréfinu til Neytendastofu telur FÍB að margt í vinnubrögðum innheimtufyrirtækjanna flokkist undir villandi og óréttmæta viðskiptahætti.

FÍB beinir gagnrýni sinni sérstaklega að fyrirtækinu Parka lausnum ehf, sem rekur Parka appið, og systurfyrirtæki þess Myparking ehf, sem rekur fjölmörg bílastæði í einkaeigu. Myparking ehf sendir kröfu um vanrækslugjöld í heimabanka bíleigenda án nokkurra skýringa eða upplýsinga um fyrirtækið. Auðvelt er að ruglast á bílastæðum óskyldra aðila í Parka appinu. Þá leggja skilmálar Parka appsins alla ábyrgð á herðar notenda og standast ekki kröfur um góða viðskiptahætti.