Nýr Kia Optima SW í Plug-in Hybrid útfærslu
Kia hefur kynnt til leiks nýjan Optima Sportwagon í Plug-in Hybrid útfærslu. Bíllinn er með tengiltvinnvél sem samanstendur af 68 kílówatta rafmótor og tveggja lítra GDI bensínvél.
Samanlagt skilar tengiltvinnvélin 205 hestöflum og 375 Nm í togi. Rafmótorinn skilar 49 hestöflum ef ekið er einungis á rafmagninu. Bíllinn er með 62 km drægni á rafmagninu við bestu hugsanlegu aðstæður sem er með því lengsta sem þekkist í flokki tengiltvinnbíla.
Útblástur Kia Optima SW Plug-in Hybrid er einungis 33 g/km sem er lægsta koltvísýringslosun í þessum stærðarflokki bíla. Kia hefur lagt mikið í að ná fram sem bestum aksturseiginleikum í bílnum og góðum þægindum í akstrinum. Kia Optima SW Plug-in Hybrid er vel búinn öllum nýjustu aksturs- og öryggiskerfum frá Kia.
Nýr 8 tommu snertiskjár er áberandi í fallegu innanrými bílsins og býður upp á tengimöguleika við Android Auto og Apple CarPlay. Bíllinn er mjög rúmgóður fyrir farþega og farangursrýmið er alls 440 lítrar með aftursætin í uppréttri stöðu sem er með því besta í þessum stærðarflokki. Bíllinn verður kynntur hér landi í byrjun september hjá Bílaumboðinu Öskju.