Nýtt deiliskipulag fyrir Vesturlandsveg tekið fyrir á fundi
Vesturlandsvegur um Kjalarnes hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu í kjölfar banaslysa en það sem af er árinu hafa tveir látist á þessum vegakafla. Síðara banaslysið var sl.mánudagskvöld, auk þess sem átta einstaklingar úr slysinu slösuðust og voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar. Mikill þrýstingur hefur verið lagður á stjórnvöld að grípa til aðgerða á Vesturlandsveginum.
Sveitastjórnir hafa ályktað um málið og undirskriftalistar hafa verið í gangi þar sem skorað er á stjórnvöld að ráðast í framkvæmdir á veginum um Kjalarnes. Fram hefur komið frá hópi fólks, sem berst fyrir bættum samgöngum um Kjalarnes, að í nærri hverri fjölskyldu á Akranesi er einhver sem keyrir Vesturlandsveg til vinnu eða náms.
Fram hefur komið að Vegagerðin áætli að það taki fimm til sjö ár að breikka Vesturlandsveg á Kjalarnesi. Gróf kostnaðaráætlun fyrir breikkun hringvegar á Kjalarnesi á 10 km kafla frá Kollafirði að Hvalfjarðargöngum er áætluð í kringum 2.600 milljónir króna.
Vinna hefur verið í gangi við gerð deiliskipulags fyrir svæðið í vetur fyrir Vesturlandsveg frá sveitarfélagsmörkum við Mosfellsbæ að Hvalfjarðargöngum. Um er að ræða ca. 14 km kafla og skilgreint helgunarsvæði Vesturlandsvegar. Tildrög verkefnisins eru að Vegagerðin hyggur á næstu árum á framkvæmdir á um 9 km kafla fyrir 2+1 veg frá Hvalfjarðargöngum að Kollafirði í núverandi vegastæði. Margar ábendingar frá stofnunum og einstaklingum hafa borist við gerð deiliskipulagsins.
Einnig er vonast til þess að með skipulagsvinnunni náist heildstætt yfirlit yfir alla aðra samgönguþætti sem þarf að útfæra nánar í skipulagi, þ.e hliðarvegi, göngustíga, reiðleiðir og hjólaleiðir. Meðal markmiða skipulagsins og framkvæmda er að Vesturlandsvegur verði endurbættur til að auka öryggi umferðar og greiða fyrir umferð og er því verið að skoða fækkun tenginga við þjóðveginn með gerð hliðarvega sem tengjast við þjóðveginn með hringtorgum á völdum stöðum.
Fjallað verður um nýtt deiliskipulag fyrir Vesturlandsveg á fundi umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar í dag. Málið verður síðan tekið til meðferðar í borgarráði til lokaafgreiðslu borgarinnar.