Olíufélögin bregðast neytendum
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur verið að lækka nokkuð síðustu vikurnar. Engu að síður hefur þessi lækkun ekki verið að skila sér til fulls íslenskum neytendum til handa. Í dag lækkaði bensínlítrinn um þrjár krónur hér á landi.
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur snarlækkað síðustu vikurnar. Frá byrjun október hefur tunnan af Brent-olíu lækkað um 25%, farið úr 86 dollurum í 63 dollara og er hráolíuverð nú svipað og það var fyrir ári síðan.
Að teknu tilliti til gengis íslensku krónunnar gagnvart bandaríkjadollar þá er meðal álagning á bensíni það sem af er nóvembermánuði um 8 krónur á lítrann umfram það sem var fyrstu mánuði ársins.
Orkan réð á vaðið og lækkaði verðið um þrjár krónur á lítrann laust fyrir klukkan tvö í dag. Lítrinn fer úr 228,60 krónum í 225,60 krónur. Áður en dagurinn var allur hafði verðið á lítranum lækkað um fimm krónur.
Álagning á dísilolíu í nóvember er 5 krónum hærri en í október og 12 krónum yfir meðal álagningu ársins 2012 svo dæmi sé tekið.