Ráðinn verkefnastjóri Sundabrautar
Næstu skref undirbúnings Sundabrautar eru vinna við mat á umhverfisáhrifum, frekari útfærsla valkosta, samráð við hagsmunaaðila og undirbúningur nauðsynlegra breytinga á skipulagsáætlunum með það að markmiði að hægt sé að hefja framkvæmdir við Sundabraut eigi síðar en árið 2026 og að þeim verði lokið árið 2031.
Gert er ráð fyrir að Sundabraut verði fjármögnuð með gjaldtöku af umferð í samræmi við lög sem samþykkt voru á Alþingi árið 2020.
Björgvin Þorsteinsson, verkfræðingur, hefur verið ráðinn verkefnisstjóri Sundabrautar. Hann mun vinna fyrir verkefnisstjórn um undirbúning Sundabrautar sem skipuð var á síðasta ári.