Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar
Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin í Hörpu, föstudaginn 2. nóvember 2018. Þetta er sautjánda ráðstefnan, en ráðstefnunni er ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess rannsókna- og þróunarstarfs, sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.
Vegagerðin vinnur að innleiðingu Grænna skrefa í ríkisrekstri og hvetur þátttakendur til huga að lágmörkun umhverfisáhrifa, svo sem með notum á vistvænum ferðamáta til og frá ráðstefnunni og taka þátt í úrgangsflokkun á staðnum.
Hér er hægt að skrá sig á ráðstefnuna á vefnum, frestur til að skrá sig er til og með 31. október 2018.
Þátttökugjald er 16.000 krónur og 4.500 krónur fyrir nema og eftirlaunaþega.