Samdráttur frá því í sömu viku fyrir ári nemur 20%
Þótt umferðin í viku 46 í ár sé meiri en í síðustu viku, sem nemur 4,4 prósentum nemur samdrátturinn frá því í sömu viku fyrir ári síðan nærri 20 prósentum á höfðuborgarsvæðinu. Samkvæmt tölum frá Vegagerðinni kemur fram að þetta er svipuð hegðun og jafnan, þ.e.a.s. breytingarnar á milli vikna utan að í ár er gríðarlegur samdráttur miðað við fyrri ár.
Umferðin í viku 46 jókst talsvert miðað við viku 45 á þessu ári eða um 4,4% í þremur lykilmælisniðum Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, en dróst aftur á móti saman um 19,5% sé miðað við sömu viku á síðasta ári. Þetta er hlutfallslega nákvæmlega sami samdráttur, þegar horft er á samanburð við síðasta ár, og varð í viku 43 og umferðin er einnig svipuð og í þeirri viku. Þessi einkenni (að vika 43 og 46 séu álíka stórar) eru ekki fjarri því hvernig þetta var á síðasta ári og jafnvel árið þar á undan, nema núna er hún 19,5% minni eins og áður sagði.
Í tölunum kemur ennfremur fram að umferð drgest minnst saman um mælisnið á Reykjanesbraut eða um 14,1% en mest um mælisnið við Kópavogslæk eða um 27,7%. Þetta er í takt við það sem hefur verið að gerast nánast allt þetta ár að umferðin dregst minnst saman á Reykjanesbraut og mest um Hafnarfjaðarveg.
Uppsafnaður samdráttur mælisniða það sem af er nóvember:
Hafnarfjarðarvegur við Kópavogslæk -32,6%
Reykjanesbraut við Dalveg -19,9%
Vesturlandsvegur ofan Ártúnsbrekku -21,9%
Af þessu sést að mælisnið á Hafnarfjarðarvegi sýnir u.þ.b. þriðjungi meiri samdrátt en hin sniðin tvö, sem er í takt við það sem hefur verið að gerast allt þetta ár.