Samið um malbikun upp á 1,7 milljarða
Samið hefur verið við Colas Ísland um malbikun á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi og Suðurlandi árin 2023 og 2024 með möguleika á framlengingu um eitt ár. Skrifað var undir samninginn fyrr í vikunni að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegarðinni.
Heildarvirði samningsins eru um 1,7 milljaðar eða um 855 milljónir á ári. Verði samningurinn framlengdur hækkar heildarvirði hans í 2,5 milljarða.
Vegagerðin bauð út þrjú verk fyrr á þessu ári á Evrópska efnahagssvæðinu, sem skiptust í malbikun á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi og Suðurlandi fyrir árin 2023 og 2024. Þrjú tilboð bárust í öll verkin frá þremur innlendum verktökum. Colas Ísland reyndist bjóða lægsta verðið í öllu þremur tilvikum, sem voru um 97-103% af kostnaðaráætlun, auk þess að uppfylla önnur skilyrði útboðsins.
Áætlað er að vinna hefjist um miðjan maí og verði lokið fyrir 1. ágúst í ár og á næsta ári.
Helstu magntölur samanlagt útboðanna þriggja eru:
126.800 m2 í útlagnir
113.400 m2 í fræsingar
20.500 m2 í hjólfarafyllingar
54.375 m í yfirborðsmerkingar