Stærsti Hleðslugarður ON hefur opnað í Borgarnesi

Nýr og glæsilegur Hleðslugarður Orku náttúrunnar hefur verið opnaður við Digranesgötu í Borgarnesi með samtals 14 tengjum.

Í nýja Hleðslugarðinum er 1 MW í boði og á hverju tengi er hægt að hlaða á allt að 480 kW og eru hleðslurnar afar þægilegar í notkun. Góður upplýsingaskjár er á stöðvunum sem tryggir frábæra upplifun og eru leiðbeiningar á nokkrum tungumálum, þar á meðal íslensku.

Í Hleðslugarðinum var mikil áhersla lögð á að tryggja gott aðgengi fyrir öll og nægt pláss er til að hlaða stærri bifreiðar eða bíla með aftanívagn.