Stafræn ökuskírteini komin á Ísland.is
Frá og með deginum í dag er hægt að sækja um og fá stafræn ökuskírteini í símann. Hægt er að nálgast þau á upplýsingaveitunni Ísland.is með því að nota rafræn skilríki. Stafræna ökuskírteinið gengur hvort tveggja fyrir Android- og iOS-stýrikerfi og góðar leiðbeiningar fylgja með umsóknarferlinu.
Stafræn ökuskírteini verða jafngild hefðbundnum ökuskírteinum á Íslandi en megintilgangurinn er að notendur geti sannað ökuréttindi sín gagnvart lögreglu.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, opnuðu í dag formlega fyrir aðgang að nýju skírteinunum og urðu fyrst til þess að fá stafræn ökuskírteini í símann.
„Það er mikið framfaraskref að fá ökuskírteini í snjallsímann og veitir fólki augljós þægindi. Ísland er annað landið í Evrópu að taka í notkun stafræn ökuskírteini og fetum þar í fótspor Norðmanna. Þetta er stefna stjórnvalda að hið opinbera bjóði upp á stafrænar lausnir í auknum mæli,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Hvernig sæki ég stafrænt ökuskírteini?
- Sótt er um stafræn ökuskírteini á vefnum Ísland.is þar sem notendur auðkenna sig með rafrænum skilríkjum. Með samþykki notenda fer sjálfvirkt umsóknarferli í gang og samstundis birtist tengill til að sækja skírteinið í símann.
- Notendum Android-síma er bent á að sækja veski (e. Wallets) í símann áður stafrænu ökuskírteini er hlaðið niður.
- Þeir sem hafa ekki endurnýjað ökuskírteini sín frá því fyrir árið 1998 þurfa að endurnýja þau hjá sýslumanni til að geta fengið stafrænt ökuskírteini í símann.
- Einungis er hægt að hafa ökuskírteinið í einu símtæki. Ef það er sett upp á öðrum síma afvirkjast það í fyrsta tækinu.
- Ökuskírteinin gilda aðeins á Íslandi.
Farsælt samstarf
Verkefnastofan Stafrænt Ísland vann tæknilausn fyrir stafrænu ökuskírteinin í samstarfi við ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðuneytið. Innleiðingin var samstarfsverkefni samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, sem ber ábyrgð á umferðarlöggjöf og reglum um ökuskírteini, og dómsmálaráðuneytis, sem fer með málefni ríkislögreglustjóra og sýslumanna. Ríkislögreglustjóri gefur út stafræn ökuskírteini en sýslumenn gefa út hefðbundin prentuð ökuskírteini í umboði ríkislögreglustjóra.
Ökuskírteini eru almennt viðurkennd gagnkvæmt milli EES ríkja en það gildir ekki um stafræn ökuskírteini, þar sem þau uppfylla ekki kröfur Evróputilskipunar um ökuskírteini. Þau verða aðeins gild á Íslandi fyrst um sinn.
- Sækja stafrænt ökuskírteini á Ísland.is
- Sækja stafrænt ökuskírteini gegnum síðu Ísland.is á Facebook
- Spurningar og svör um stafræn ökuskírteini
Mynd: Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra sýna stafræn ökuskírteini sín.