Starfsmenn Vegagerðarinnar eru harmi slegnir
Vegna umræðu um öryggi á vegum að undanförnu vill forstjóri Vegagerðarinnar koma því á framfæri að starfsmenn eru harmi slegnir yfir banaslysi á Kjalarnesi í júnilok og því að slíkar aðstæður hafi getað skapast við venjubundið viðhald á vegum. Vegagerðin vinnur nú að umfangsmikilli endurskoðun á öllum ferlum sem lúta að yfirlögnum á vegakerfinu. Markmið þeirrar vinnu er að tryggja að slys sem þetta geti ekki komið fyrir aftur.
Yfirlýsing frá forstjóra Vegagerðarinnar
,,Vegna umræðu um öryggi á vegum að undanförnu viljum við hjá Vegagerðinni koma eftirfarandi á framfæri.
Í júní síðastliðnum átti sér stað hræðilegt slys á Kjalarnesi. Á umræddum vegarkafla var nýlokið viðhaldi á malbiksyfirborði og beindust sjónir strax að frávikum í framkvæmd þessa verks. Rannsóknir á viðnámi á yfirborði sýndu í framhaldinu að miklu munaði að uppfylltar væru kröfur í útboðslýsingu til verksins. í rannsóknum sem gerðar voru í kjölfarið og enn eru í gangi kemur berlega í ljós að umrætt malbik stóðst ekki útboðskörfur Vegagerðarinnar. Augljóst samhengi er milli þeirra galla og þeirra aðstæðna sem sköpuðust á slysstað.
Við starfsmenn Vegagerðarinnar erum harmi slegin yfir slysinu og því að slíkar aðstæður hafi getað skapast við venjubundið viðhald á vegum. Í framhaldi af þessu hafa allir hlutar umrædds verks verið fjarlægðir utan einn sem sannarlega stóðst kröfur til viðnáms. Verkið sem um ræðir var framkvæmt af verktaka með mikla reynslu. Sú reynsla kom því miður ekki í veg fyrir þær afleiðingar sem við öll þekkjum.
Vegagerðin vinnur nú að umfangsmikilli endurskoðun á öllum ferlum sem lúta að yfirlögnum á vegakerfinu. Markmið þeirrar vinnu er að tryggja að slys sem þetta geti ekki komið fyrir aftur.“