Tækifæri fyrir tæknilega úttektarmenn

Skoðanir ökutækja fara fram hjá faggiltum skoðunarstofum á Íslandi. Hugverkastofan hefur með höndum allar tegundir faggildinga, m.a. á skoðunarstofum ökutækja.

Hugverkastofan gerir úttektir á skoðunarstofum og leggur mat á störf þeirra, m.a. á því hvernig skoðunarmenn bera sig að við skoðun ökutækja. Í þessum úttektum fara tæknilegir úttektarmenn með stórt hlutverk.

Nú hefur Hugverkastofan auglýst eftir úttektarmanni. Sá sem verður ráðinn mun fá þjálfun til að öðlast færni í úttektum og felst þjálfunin bæði í námskeiðum og handleiðslu.

Samgöngustofa hvetur þau sem hafa hæfni og áhuga á að starfa sem úttektarmenn til að sækja um, ekki síst þau sem starfað hafa áður sem skoðunarmenn.

Hér má sjá auglýsingu Hugverkastofunnar um tæknilega úttektarmenn.