Tæplega þriðjungur á negldum dekkjum

Hlutfall nagladekkja í Reykjavík er svipað og í fyrra samkvæmt talningu borgarinnar sem gerð var um miðjan nóvembermánuð.Tæplega þriðjungur reyndist vera á nöglum. Reykjavíkurborg mælir með góðum vetrardekkjum til að draga úr mengun, hávaða og sliti á götum.

Hlutfallið milli negldra og ónegldra dekkja undir bifreiðum í Reykjavík er reiknað út sex sinnum yfir veturinn. Talning fór fram 13. nóvember. Hlutfallið skiptist þannig að 29% ökutækja voru á negldum dekkjum og 71% voru á öðrum dekkjum.

Hlutfall negldra dekkja er svipað og í fyrra þegar það var 28,2%. Fyrir tveimur árum (2022) var hlutfallið aðeins hærra, eða 33.9% og fyrir þremur árum (2021) var það töluvert hærra eða 39,6%, en fyrir fjórum árum (2020) var það sambærilegt eða 29,5%.

Veturinn hefur verið mildur í Reykjavík fram að þessu og bíleigendur hafa verið hvattir til að velja góð vetrardekk undir bílana. Vitnað er í  vetrardekkjakönnun FÍB sem hægt er að nálgast hér.