Tímabundin stöðvun á framleiðslu ökuritakorta

Framleiðsla ökuritakorta fer fram erlendis og mun flytjast á milli landa hinn 19. september. Af þeim sökum mun ekki verða hægt að framleiða kort í 4-6 vikur.

Þau sem þurfa að sækja um eða endurnýja ökuritakort eru hvött til að ganga frá umsókn í síðasta lagi hinn 16. september, til að hægt verði að framleiða kortið fyrir hina tímabundnu stöðvun.

Hér má sækja um og endurnýja ökuritakort.