Tvöföldun Reykjanesbrautar verði sett í forgang
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsir yfir vonbrigðum með að ekki sé tryggt fjármagn árið 2018 við áframhaldandi framkvæmdir við Reykjanesbraut innan Hafnarfjarðar og skorar á þingmenn að sjá til þess að framkvæmdum verði forgangsraðað í samræmi við öryggissjónarmið. Þetta kemur fram á vísi.is og í fréttatilkynningu frá bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Á fundi bæjarstjórnar var fjallað um umferðaröryggi íbúa Hafnarfjarðar. „Það þykir orðið mjög brýnt að framkvæmdum við tvöföldun Reykjanesbrautar innan Hafnarfjarðar verði lokið. Enda ekkert annað sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu sem býr við að þjóðvegur liggi í gegnum bæjarfélagið með aðeins eina akrein í sitt hvora áttina,“ segir í fréttatilkynningunni.
Bæjarstjórnin samþykkti bókun um efnið einróma á fundinum en þar skorar bæjarstjórnin á þingmenn að sjá til þess að framkvæmdum verði forgangsraðað í samræmi við öryggissjónarmið samgönguáætlunar og því beri að ljúka framkvæmdum við tvöföldun Reykjanesbrautar innan Hafnarfjarðar.
„Unnið verði samkvæmt tillögu um skiptingu framkvæmda við Reykjanesbraut innan Hafnarfjarðar sem samráðshópur Vegagerðarinnar og Hafnarfjarðarbæjar hefur lagt fram. Sem fyrsta áfanga verði tryggt fjármagn á árunum 2018 og 2019 til að ljúka framkvæmdum við tvöföldun Reykjanesbrautar frá Kaldárselsvegi að mislægum gatnamótum við Krýsuvíkurveg. Hönnun á þessum vegarkafla liggur fyrir. Síðan verði tryggt fjármagn í samgönguáætlun á árunum þar á eftir til að ljúka framkvæmdum við Reykjanesbraut innan Hafnarfjarðar skv. framangreindri tillögu,” segir í bókuninni.
Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar ritaði bréf til þingmanna Suðvesturkjördæmis um sama mál í síðasta mánuði. Þar minnti hann á að á íbúafundi um samgöngumál í Hafnarfirði í haust var skorað á stjórnvöld að tryggja áframhaldandi úrbætur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði.