Umferð á höfuðborgarsvæðinu dregst saman
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í maí dróst saman um 1,5 prósent. Þetta er annar mánuðurinn í röð sem mælist samdráttur á svæðinu sem er ólíkt því sem gerðist á Hringveginum. Eigi að síður hefur umferðin fyrstu fimm mánuði ársins aukist um 5,3 prósent sem er veruleg aukning að því er fram kemur í tölum frá Vegarerðinni.
Annan mánuðinn í röð dregst umferð saman á höfuðborgarsvæðinu en 1,5% samdráttur mældist í nýliðnum maí miðað við sama mánuð á síðasta ári. Mest dregst umferð saman um mælisnið á Hafnarfjarðarvegi en minnst um snið ofan Ártúnsbrekku.
Í tölunum kemur fram að samdráttur mælist í flestum vikudögum, en minniháttar aukning mældist á fimmtudögum og laugardögum. Mest dregst umferð saman á mánudögum eða um 11,5%. Hlutfallslegur samdráttur á virkum dögum og helgum er þó svipaður. Af maí mánuði liðnum hefur umferð aukist um 5,3% frá áramótum sem er um tvisvar sinnum meiri en meðaltalsaukningin, á þessum ársíma, hefur verið frá árinu 2005.
Spálíkan umferðardeildar gerir ráð fyrir að umferð á höfuðborgarsvæðinu árið 2023 gæti orðið um 4% meiri en hún var á síðasta ári.
Í ljósi þess að umferð á höfuðborgsarsvæðinu hefur dregist saman, miðað við árið á undan, tvo mánuði í röð, er freistandi að velta fyrir sér hvort að stýrivaxtahækkanir Seðlabankans séu farnar að draga úr umsvifum á svæðinu, sem aftur hafi leitt til minni umferðar. Niðurstaðan gæti því orðið minni aukning, en spálíkan gerir ráð fyrir núna.