Umferð eykst ekki jafn hratt á höfuðborgarvæðinu

Umferðin á höfuborgarsvæðinu í ágúst jókst um tæp þrjú prósent sem er u.þ.b. meðaltalsaukning. Umferðin það sem af er ári hefur aukist minna en á sama tíma og í fyrra. Nú lítur út fyrir að umferðin á svæðinu í ár aukist um 3,3, en heldur dregur úr umferðaraukningu frá því í fyrra að því er fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

Umferð yfir þrjú lykil mælisnið Vegagerðarinnar, á höfuðborgarsvæðin, jókst um 2,9% í ágúst borið saman við sama mánuð á síðasta ári. Þessi aukning er rétt rúmlega meðaltalsaukning umferðar í ágúst mánuði frá árinu 2005, sem er um 2,4%.

Með þessari aukningu var sett nýtt umferðarmet, í ágúst mánuði, en alls fóru um rúmlega 185 þúsund ökutæki á sólarhring yfir mælisniðin þrjú.Mest jókst umferð yfir mælisnið á Hafnarfjarðarvegi eða um 5,6% en minnst yfir mælisnið á Vesturlandsvegi eða um 1,1%.

Nú hefur uppsöfnuð umferð, frá áramótum, aukist um 3,5%, sem er einu og hálfu prósentustigi minna en á sama tíma á síðasta ári.Í nýliðnum mánuði var mest ekið á fimmtudögum og minnst á sunnudögum.