Umferð um stofn­vegi jókst talsvert á höfuðborgarsvæðinu

Umferð um stofnvegi höfuðborgarsvæðis jókst talsvert milli marsmánaða 2024 og 2025, ef marka má þrjú lykil mælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, eða um 4,2%.Umferð jókst í öllum þremur mælisniðum, mest í mælisniði á Hafnarfjarðarvegi eða 5,4% en minnst í mælisniði ofan Ártúnsbrekku eða 2,6%.

Þessi aukning er ekki í samræmi við það sem gerðist á Hringveginum, á sama tíma, en þar dróst umferð saman.

Mest ekið á fimmtudögum og föstudögum í nýliðnum mánuði

Mest var ekið á fimmtudögum og föstudögum, í nýliðnum mánuði, en minnst á sunnudögum. Hlutfallslega jókst umferð mest á föstudögum eða um 10,8% en minnst jókst umferð á mánudögum eða um 0,2%.

Nú þegar liðnir eru þrír mánuðir af árinu, hefur uppsöfnuð umferð aukist um 3,7% borið saman við sama tímabil á síðasta ári.

Samdráttur í umferð um Hringveginn

Hins vegar Annan mánuðinn í röð mælist samdráttur í umferð um Hringveginn en í nýliðnum mánuði dróst umferð saman um 1,6%, ef marka má 16 lykilteljara Vegagerðarinnar, borið saman við sama mánuð á síðasta ári.

Umferð dróst saman á þremur landssvæðum, eða á Suðurlandi um 8,1%, Vesturlandi um 2,7% og Austurlandi um 2,9%. Umferð jókst hins vegar aðeins um teljara í grennd við hbsvæðið eða um 0,3% og Norðurland um 3,4%.

Mest dróst umferð saman um mælisnið á Hellisheiði eða um 9,1%, sem er afar óhefðbundið. Umferð jókst hins vegar mest um mælisnið á Möðrudalsöræfum um 11,4%.