Umferðin á höfuðborgarsvæðinu að ná jafnvægi
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu síðustu tvær vikur er áþekk umferðinni í sömu vikum fyrir ári síðan. Í tölum frá Vegagerðinni kemur fram að sveiflur eru í umferðinni eftir vikum en hugsanlega spilar veðurspáin þar nokkra rullu þar sem góð spá getur leitt til þess að fleiri haldi út á land af höfuðborgarsvæðinu. Umferðin virðist sem sagt vera búin að jafna sig á samdrættinum vegna Covid 19.
Umferðin í viku 24 reyndist 4,4% meiri en í sömu viku á síðasta ári, fyrir þrjú lykilmælsnið á höfuðborgarsvæðinu. Þessi ,,jákvæði” mismunur er jafnframt sá mesti miðað við það sem liðið er af árinu. Í síðustu viku, eða viku 25, reyndist umferðin hins vegar 1,4% minni en í sömu viku fyrir ári síðan.
Í viku 24 mældist umferð yfir öll mælsnið meiri en á síðasta ári og mestu munaði um tæplega 7% aukningu yfir mælisnið á Reykjanesbraut, sem er jafnframt lang mesta aukningin á þessu ári, en minnst jókst umferðin um mælisnið á Vesturlandsvegi eða um 3,4%. Þetta er athyglisvert þar sem þetta er í fyrsta skipt sem mælisnið á Hafnarfjarðarvegi er ekki lægst sniðanna þriggja.
Í síðustu viku, eða viku 25, jókst umferðin aftur mest um mælisnið á Reykjanesbraut en mun minna en í viku 24, eða um 2,8%. Þá mældist hinsvegar 5,4% samdráttur um mælisnið á Hafnarfjarðarvegi í sömu viku.
Það lítur út fyrir að umferð um mælisnið á Reykjanesbraut sé orðin meiri en hún var á sama tíma fyrir ári síðan. Of snemmt er að fullyrða um hin tvö sniðin en þau eru komin fast að því sem umferðin var um þau á síðasta ári.
Hlutfallslegur mismunur varð eftirfarandi, eftir mælisniðum:
Heiti sniðs vika 24 vika 25
Hafnarfjarðarvegur við Kópavogslæk +4,0% -5,4%
Reykjanesbraut við Dalveg í Kópavogi +6,8% +2,8%
Vesturlandsvegur ofan Ártúnsbrekku +3,4% +0,1%