Umferðin á höfuðborgarsvæðinu dróst örlítið saman í júní

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu um þrjú mælisnið Vegagerðarinnra dróst örlítið saman í júní frá því í sama mánuði fyrir ári. Eigi að síður er þetta næst umferðarmesti júnímánuður á svæðinu. Vegagerðin spáir því nú að umferðin muni aukast um 3,5 prósent í ár á höfuðborgarsvæðinu að því er fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

Eins og á Hringvegi, varð örlítill samdráttur í umferð á höfuðborgarsvæðinu í júní sl. Aðeins eitt snið af þremur sýndi aukningu en það var sniðið á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogslæk og þar varð 1,1% aukning, en 1,8% og 1,5% samdráttur um hin tvö sniðin, sjá nánar talnaefni https://www.vegagerdin.is/samgongukerfid/vegakerfid/umferdartolurHeildarumferð um mælisniðin þrjú varð sú næst mesta, frá upphafi mælinga, þrátt fyrir þennan samdrátt.

Umferð eftir vikudögum
Umferðin, í nýliðnum mánuði, var álíka mikil frá miðvikudegi til föstudags. Minnst var ekið á sunnudögum.Það er eftirtektarvert að umferð dróst einungis saman á mánudögum í nýliðnum mánuði eða um 7,6% þ.a.l. er sá samdráttur orsökin af heildarsamdrætti sniðanna þriggja. Hlutfallslega jókst umferð mest á laugardögum, eða um 7,4%, en umferð á laugardögum og sunnudögum er gjarnan minnst. Umferð á föstudögum stóð í stað miðað við sama mánuð á síðasta ári.