Umferðin á höfuðborgarsvæðinu jókst um 8%
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í maímánuði jókst um átta prósent frá maí í fyrra, sem nær þó ekki að vinna upp hvað umferðin dróst mikið saman þann mánuð fyrir ári. Í ár hefur umferðin á svæðinu aukist um 10 prósent og útlit fyrir að umferðin í ár aukist um 8,5 prósent. Þá yrði umferðin eigi að síður 2,5 prósentum minni en hún var árið 2019 að því fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.
Umferðin í maí sl., í þremur lykilmælisniðum Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, reyndist 8% meiri en í sama mánuði fyrir ári síðan. Mest jókst umferð í mælisniði á Hafnarfjarðarvegi eða um tæplega 12% en minnst á Vesturlandsvegi, ofan Ártúnsbrekku, eða um 6%.
Hafa ber í huga að umferðin dróst saman um 9,5%, í sama mánuði í fyrra, vegna Covid-faraldursins. Nú hefur umferðin aukist um tæp 10% miðað við sama tímabil á síðasta ári.
Umferð eftir vikudögum
Á virkum dögum var mest ekið á miðvikudögum en minnst á mánudögum. Umferðin um helgar var þriðjungi minni en á virkum dögum. Umferð jókst um 7,8% á virkum dögum en um 8,8% um helgar.