Umferðin á höfuðborgarsvæðinu stóð í stað
Umferðin í október á höfuðborgarsvæðinu reyndis nánast sú sama og í október í fyrra, en hún jókst um 0,1 prósent. Ólíkt Hringveginum er ekki útlit fyrir að umferðarmetið frá árinu 2019 verði slegið í ár á svæðinu en búast má við að í heild verði umferðin 2022 um einu prósenti minni en metárið 2019. Þetta kemur fram í tölum frá Vegarðinni.
Umferðin, í þremur lykilmælisniðum Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, í nýliðnum októbermánuði reyndist svo gott sem á pari við sama mánuð á síðasta ári en einungis 0,1% aukning mældist. Þannig að strangt til tekið var sett nýtt umferðarðarmet í október á höfuðborgarsvæðinu.
Umferðin jókst aðeins í einu mælisniði eða um Hafnarfjarðarveg um 0,6%. Mælisnið á Reykjanesbraut og á Ártúnsbrekku stóðu svo til í stað með 0,0% og 0,1% samdrátt. Núna hefur umferðin aukist um 1,6% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári.
Umferð jókst alla virka daga í nýliðnum október borið saman við sama mánuð á síðasta ári, en dróst saman um helgar. Mest jókst umferðin á miðvikudögum eða um 1,7% en dróst mest saman á sunnudögum eða um 4,1%. Mest var ekið á föstudögum en minnst á sunnudögum.
Nú stefnir í að umferðin, á höfuðborgarsvæðinu, aukist um rétt tæpt 1% miðað við árið 2021. Gangi þessi spá eftir mun umferðin samt sem áður verða um 1% undir gamla metinu frá árinu 2019.