Umferðin á Hringvegi jókst í júní um rúmlega 6%
Umferðin á Hringvegi í júní jókst um 6,1% sem er mun meiri aukning en á sama tíma í fyrra. Aftur dróst umferðin saman á Austurlandi. Aukningin í umferðinni fyrstu 6 mánuði ársins er töluverð en eigi að síður er gert ráð fyrir lítilli aukningu nú í ár eða um 1%. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.
Umferðin yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi jókst um 6,1% í júní mv sama mánuð á síðasta ári. Þessi aukning er talsvert meiri en á milli sömu mánuða á síðasta ári en langt undir aukningunni 2017.
Mest jókst umferðin um Vesturland eða 10,7% og er það annan mánuðinn í röð sem umferðin eykst mest á því svæði. 2,0% samdráttur varð hins vegar í umferð um lykilteljara á Austurlandi og er það eina svæðið sem sýnir samdrátt í júní.
Frá áramótum
Í tölunum kemur fram að núna hefur umferðin aukist um 4,9%, frá áramótum borið saman við sama tímabil á síðasta ári. Þessi aukning er svipuð m.v. stöðuna á síðasta ári en þá hafði umferðin aukist um 4,7% m.v. árið þar á undan (2017).
Mest hefur umferðin aukist um Hringveg á Vesturlandi eða 8,7% og er það freistandi að draga þá ályktun að þessi aukning sé, a.m.k. að einhverjum hluta, tilkomin vegna þess að hætt var að að rukka í Hvalfjarðargöng á síðasta ári. Umferðin hefur hins vegar dregist saman um 1,7% á Austurlandi og er það eina svæðið sem sýnir samdrátt á þessum tímapunkti.
Umferð vikudaga
Það sem af er ári er mest ekið á föstudögum en minnst á þriðjudögum.
Hlutfallslega hefur umferð aukist mest á sunnudögum en minnst á þriðjudögum, m.v. sömu vikudaga á síðasta ári.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að núna þegar árið er hálfnað gerir spálíkan umferðardeildar ráð fyrir að umferðin um Hringveginn gæti aukist um 1%. Gangi þessi spá eftir er það mun minni aukning en varð á síðasta ári en þá jókst hún um 4,6%.
Vegagerðin hefur oft bent á fylgni milli hagvaxtar og umferðar og þar sem spáð er samdrætti í hagvexti nú í ár kemur spá um litla umferðaraukningu ekki á óvart, en þetta skýrist frekar í lok sumars.