Umferðin á Hringveginum jókst 2018
Umferðin í desember sl. á Hringveginum jókst um 3,4 prósent. Umferðin árið 2018 jókst þá í heild um 4,6 prósent á Hringveginum en fara þarf aftur til ársins 2013 til að finna minni aukningu á milli ára, aukning var mun meiri árin 2016 og 2017. Þetta kemur fram í gögnum frá Vegagerðinni.
Umferðin í nýliðnum desembermánuði jókst um 3,4 % miðað við sama mánuð árið 2017. Þá er ljóst að umferðin jókst í öllum mánuðum ársins fyrir utan febrúar en þá varð 2,6 % samdráttur.
Mest jókst umferðin um Vesturland eða um 6,4 % en minnst varð aukningin um Norðurland eða um 1,3 %. Mögulega hefur niðurfelling gjaldskyldu í Hvalfjarðargöngum orðið til þess að umferðin hafi aukist þetta mikið, á Vesturlandi, umfram aðra landshluta en næst mest jókst umferðin um Suðurland eða um 5,1 %.
Nú liggur það fyrir að umferðin á síðasta ári jókst um 4,6% yfir 16 lykilteljara á Hringvegi miðað við árið 2017. Mest jókst umferðin um Suðurland eða um 7,4 % en minnst um Norðurland eða um 2,5 %. Þó að heildaraukning yfir árið sé talsverð þarf að fara aftur til ársins 2013 til að finna minni aukningu á milli ára.
Umferð eftir vikudögum
Umferðin jókst í öllum vikudögum og hlutfallslega mest á mánudögum eða 4,8% en minnst jókst umferðin á sunnudögum eða um 1,5%. Mest var ekið á föstudögum en minnst á þriðjudögum.