Umferðin að færast í aukana
Umferðin í síðustu viku, viku 19, á höfuðborgarsvæðinu jókst nokkuð frá fyrri viku þótt hún hafi verið nærri 10 prósentum minni en í sömu viku fyrir ári síðan. Þannig að rýmkun á samkomubanni og aukin umsvif vegna þess hafa leitt til þess að umferðin er aftur farin að aukast. Hvort hún verður aftur jafnmikil og fyrir ári á hinsvegar eftir að koma í ljós af því fram kemur í upplýsingum frá Vegagerðinni.
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu hefur verið að aukast nokkuð skarplega síðustu 4 vikurnar en í síðustu viku reyndist hún 9,5% minni en í sömu viku á síðasta ári. Þetta er minnsta samdráttarmæling síðan í viku 11, sem var vikan fyrir samkomubann. Nú verður fróðlegt að sjá hvort að þessi munur, sem mældist í síðustu viku, sé það sem umferðin fari í eða hvort hún haldi áfram að aukast jafnt og þétt.
Eins og áður mælist mesti samdrátturinn um mælisnið á Hafnarfjarðavegi við Kópavogslæk, eða tæplega 20%, en minnst dregst umferðin saman um mælisnið á Reykjanesbraut við Dalveg eða um 5%, sem verður að teljast lítið í ljósi ástandsins.
Mismunur í viku 19, eftir mælisniðum:
Kópavogslækur 19,9%
Reykjanesbraut 5,0%
Vesturlandsvegur 7,0%