Hægir aðeins á umferðinni á höfuðborgarsvæðinu
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í janúar reyndist rúmum tveimur prósentum minni í ár en í sama mánuði í fyrra. Umferðin dróst saman rétt eins og á Hringveginum en þar dróst hún einmitt aðallega saman í mælipunktum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.
Umferðin dróst saman um 2,2% í þremur lykilmælisniðum Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum janúar borið saman við sama mánuð árið 2021. Umferð dróst saman í tveimur mælisniðum og mest í mælisniði á Vesturlandsvegi ofan Ártúnsbrekku eða um 4,5% en minniháttar aukning mældist í mælisniði á Reykjanesbraut eða 0,8%.
Janúar kom þannig út að umferð stóð í stað eða dróst saman í öllum vikudögum fyrir utan miðvikudaga en í þeim jókst umferðin um 6%. Umferð dróst aftur á móti mikið saman á föstudögum eða um 19%. Mest var ekið á föstudögum en minnst á sunnudögum.