Umferðin eykst á Hringveginum

Umferðin á Hringvegi jókst um 4,5 prósent í nýliðnum september mánuði miðað við sama mánuð fyrir ári. Slegið var nýtt met i mánuðinum en þessi aukning er nokkuð yfir meðaltalsaukningu síðustu ára. Nú er útlit fyrir að umferðin í ár á Hringveginum aukist um 3,2 prósent að því er fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

Umferðin, yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi í nýliðnum september, jókst um 4,5% borið saman við sama mánuð á síðasta ári. Þar með var slegið nýtt umferðarmet í september mánuði á Hringveginum, en alls fóru að jafnaði rúmlega 109 þúsund ökutæki á sólarhring samtals yfir mælisniðin 16, en tæplega 105 þúsund ökutæki ðá sólarhring fóru um þessi sömu snið á síðasta ári. Árleg meðaltalsaukning í september er 3,6%, svo núverandi aukning er vel yfir meðaltali.

Mestu munar um að umferð jókst um 7,3% yfir mælisnið á Suðurlandi og um 4,5% yfir snið á og í grennd við höfuðborgarsvæðið. Öll svæði sýndu aukningu en minnst jókst umferð um Austurland eða 0,5%.

Af einstaka stöðum, sýndi mælisnið á Geithálsi mesta aukningu eða 8,6% en mælisnið á Fagradal sýndi 3,1% samdrátt. Nú hefur umferðin aukist um 3,5%, frá áramótum, borið saman við sama tímabil á síðasta ári. Þó þessi aukning sé í ,,góðu“ meðallagi er hún engu að síður sú minnsta frá árinu 2020 (sem var óvanalegt ár vegna Covid-19).

Frá áramótum hefur umferð aukist hlutfallslega mest á sunnudögum en minnst á miðvikudögum. Mest er ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.