Útlit fyrir minnstu aukningu síðan 2012
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst jókst mjög lítið eða um 0,4 prósent. Umferðin frá áramótum hefur einungis aukist um 1,2 prósent og útlit er nú fyrir að heildaraukningin í ár geti numið 2,4 prósentum, samkvæmt reiknilíkani Vegagerðarinnar. Það yrði þá minnsta aukning síðan árið 2012. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.
Umferð jókst samtals um 0,4% yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum mánuði miðað við sama mánuð á síðasta ári. Þessi litla heildaraukning er borin uppi af 1,5% aukningu í mælisniði ofan Ártúnsbrekku því umferð í hinum tveimur sniðunum dróst saman um 0,4% og 0,2%.
Nú hefur umferð aukist um 1,2%, frá áramótum. Leita þarf aftur til ársins 2012 til að finna minni aukningu miðað við árstíma. Umferðin jókst í öllum vikudögum nema sunnudögum en þar mældist 1,5% samdráttur miðað við sömu vikudaga í ágústmánuði 2018. Mest var ekið á fimmtudögum en minnst á sunnudögum í nýliðnum mánuði.
Nú er gert ráð fyrir að umferð geti aukist um 2,4% miðað við síðasta ár. Gangi það eftir verður þetta minnsta aukning frá árinu 2012.