Vegum gæti verið lokað með litlum fyrirvara
Færð er farin að spillast á Reykjanesbraut og er hún lokuð í átt til Reykjavíkur.Nú þegar hafa tvö ökutæki runnið útaf en það var blessunarlega án meiðsla að því er fram kemur í upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Þá er Grindavíkurvegur einnig orðinn þungfær og er hann tímabundið lokaður í norðurátt vegna ökutækis sem situr fast við Gíghæð.
Gul viðvörun vegna veðurs tekur gildi á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði, Vestfjörðum og Miðhálendi fyrir hádegi í dag. Það verður suðaustanhríðarveður með snjókomu, skafrenningi, lélegu skyggni og hálku, og varasamt að vera á ferðinni. Vegagerðin biður vegfarendur að kynna sér aðstæður áður en lagt er af stað.
Óvissustig er á nokkrum leiðum fram á kvöld, svo sem á Hellisheiði og Þrengslum, Mosfellsheiði og víðar, og gætu vegir lokað með stuttum fyrirvara.
Gul viðvörun á morgun um allt land vegna sunnanstorms
Síðdegis á morgun er svo gul viðvörun um allt land vegna sunnanstorms með úrhellisrigningu og asahláku, sem gildir þar til seint á sunnudagskvöld.