Verksamningur um framkvæmd ökuprófa framlengdur
Frá 1. júní 2017 hefur verið í gildi verksamningur milli Samgöngustofu og Frumherja um framkvæmd ökuprófa.
Samningurinn var gerður að undangengu útboði og felur í sér að Frumherji sjái um framkvæmd á skriflegum og verklegum ökuprófum á öllu landinu.
Gildistími samningsins voru fimm ár en samningurinn hefur nú verið framlengdur um eitt ár, eða til 31. maí 2023.
Næstu mánuðir verða nýttir til að undirbúa komandi útboð á verkefninu að gildistímanum loknum og er sú vinna þegar hafin.