Vinnuvélar í umferð eru nú skráningarskyldar
Vinnunnuvélar sem ætlaðar eru til aksturs í umferð, það er að segja á opinberum vegum, þurfa nú að skrá þær í ökutækjaskrá og setja á þær skráningarmerki til auðkenningar. Skráning þessara vinnuvéla hófst, 1. nóvember, og þarf að hafa farið fram fyrir 31. desember næstkomandi. Eftir þann tíma má eiga von á sektum.
Ökutækjaskrá er í umsjón Samgöngustofu en til hagræðingar fyrir eigendur vinnuvéla mun Vinnueftirlitið annast allar skráningar og eigendaskipti á þeim. Sótt er um skráningu vinnuvéla til aksturs í umferð á mínum síðum á vef Vinnueftirlitsins.
Reglur um skráningu vinnuvéla koma fram í umferðarlögum sem tóku gildi 1. janúar 2020 og reglugerð um skráningu ökutækja.
Nánari upplýsingar er að finna undir götuskráning á vef Vinnueftirlitsins.