22.01.2021
Breski bílavefurinn What Car? veitti á dögunum tveimur bílategundum viðurkenningu. Annars vegar var um ræða Hyundai i10 og Kia Sorento.
21.01.2021
Vegna blæðinga á klæðingu þjóðveginum á vegakaflanum frá Borgarnesi að Öxnadalsheiði í desember sl. hefur Vegagerðinni borist tilkynningar um tjón á 108 bílum. Áætlaður kostnaður Vegargerðinnar er um níu milljónir en endanlegur kostnaður liggur ekki fyrir. Vegagerðin bætir tjón og þrif sem bílarnir urðu fyrir.
20.01.2021
Stefnt er að því að bjóða út þverun Þorskafjarðar í næstu viku en nýverið náðist samkomulag við landeigendur í Þorskafirði. Verkið ber heitið Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, Kinnastaðir-Þórustaðir. Í því felst nýbygging Vestfjarðavegar á um 2,7 km kafla við austanverðan Þorskafjörð.
20.01.2021
Orka náttúrunnar hefur gefið út nýja verðskrá sem tekur mið af breyttri hleðsluhegðun íslenskra rafbílaeigenda og aukinni afkastagetu hleðslustöðva. Fram kemur í tilkynningu að til þessa hefur verðskráin verið óhagstæðari fyrir eldri bíla sem þurft hafa lengri tíma til að hlaða en meðal breytinga er að nú er ekkert mínútugjald tekið í hraðhleðslum ON og aðeins greitt fyrir kWst.
20.01.2021
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf um að innkalla þurfi 86 Land Rover Discovery Sport MHEV og Range Rover Envoqe MEHV bifreiðar af árgerð 2019 - 2020.
19.01.2021
Alþingi samþykkti í gær með öllum greiddum atkvæðum að fela ríkisendurskoðanda að gera úttekt á starfsemi Vegagerðarinnar í samræmi við skýrslubeiðni nokkurra þingmanna. Sara Elísa Þórðardóttir, þingmaður Pírata er fyrsti flutningsmaður skýrslubeiðninnar. Ríkisendurskoðandi mun því ráðast í fjárhags- og stjórnsýsluúttekt á Vegagerðinni og skila skýrslu að þeirri vinnu lokinni.
18.01.2021
Nýskráningar fyrstu tvær vikurunar þessa árs eru 285 sem er um 9,8% samdráttur miðið við sama tímabil í fyrra. Toyota er sem fyrr með flestar nýskráningar, alls 51. Mitsubishi kemur er í öðru sæti með 34 bíla og Kia með 29 bíla í þriðja sætinu.
18.01.2021
Sett hefur verið á laggirnar nefnd sem sænska orkustofnunin stýrir til vinna að lausnum sem hefur það að markmiði að bæta aðgengi fyrir rafbílaeigendur þar í landi. Ljóst er að aðgengi til hleðslu í fjölbýlishúsum er skammt á veg komið. Fyrir þá sem eiga þess ekki kost að hlaða bílinn heima eða í vinnunni draga kannski á langinn að ráðast í kaup á rafbíl.
18.01.2021
Olís hefur opnað nýja hraðhleðslustöð fyrir rafbíla á þjónustustöð félagsins á Reyðarfirði. Hraðhleðslustöðvar Olís eru þar með orðnar fjórar; í Álfheimum í Reykjavík, á Höfn í Hornafirði, Siglufirði og Reyðarfirði.
18.01.2021
Umferðin í þriðju viku ársins á höfuðborgarsvæðinu reyndist um 4% minni en í sömu viku á síðasta ári. Þetta er minnsti samdráttur milli vikna það sem af er ári. Samtals frá áramótum hefur umferðin nú dregist saman um 14%. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.