13.09.2023
Það vantar skýrileika í rekstrarumhverfi bílgreina á næsta ári. Innflytjendur ökutækja eru þegar byrjaðir að panta bíla til afhendingar í febrúar og mars. Óviðunandi sé að vita ekki hvernig verðleggja megi vöruna,“ segir María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, í samtali við ViðskiptaMoggann.
12.09.2023
Þrátt fyrir loðið orðalag í kynningu fjármálaráðherra á breyttri gjaldtöku af notkun ökutækja, þá er ljóst að áformað er að fara að hluta þá leið sem FÍB hefur lagt til um kílómetragjald.
12.09.2023
Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga 2024 sem kynnt voru á fréttamannafundi í morgun í fjármálaráðuneytinu er gert er ráð fyrir aukinni gjaldtöku af rafbílum. Innleitt verður nýtt tekjuöflunarkerfi í tveimur áföngum. Fjármálaráðherra gat þess í kynningu frumvarpsins að gefið hafi verið of mikið eftir af heildartekjum vegna rafbíla. Það kom fram í máli fjármálaráðherra að áfram verði samt hagkvæmara að eiga rafbíl.
11.09.2023
Bílasala hefur verið með ágætum það sem af er þessu ári. Samkvæmt tölum frá Bílgreinasambandinu kemur fram að að nýskráningar fólksbíla eru orðnar alls 12.986 en voru á sama tíma í fyrra 12.013. Þetta er aukning um 8,1% á milli ára.
07.09.2023
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að hann vilji endurskoða Samgöngusáttmálann en allar fjárhagslegar forsendur skorti fyrir framkvæmdinni í dag. Áætlaður kostnaður við verkefni Samgöngusáttmálans hefur nær tvöfaldast frá því sem gert var ráð fyrir og er nú 300 milljarðar í stað þeirra 160 milljarða sem uppreiknuð kostnaðaráætlun gerir ráð fyrir. Upphafleg áætlun var hins vegar upp á 120 milljarða. Bjarni segir þar að eftir því sem verkefninu hafi undið fram hafi komið betur í ljós að upphaflegar áætlanir hafi verið stórlega vanmetnar og virðist það eiga við um nær alla þætti sáttmálans.
06.09.2023
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu jókst um 1,3 prósent í ágúst miðað við ágúst í fyrra. Þetta er mesta mælda umferð í ágústmánuði en umferðarmesti mánuður hingað til var júní síðastliðinn. Útlit er fyrir að umferðin í ár aukist um 4,5 prósent sem myndi leiða til umferðarmesta árs frá því mælingar hófust og met frá árinu 2019 yrði slegið. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.
06.09.2023
Vaðlaheiðargöng hf., sem byggði og rekur samnefnd göng á Norðurlandi og eru í 93 prósent eigu íslenska ríkisins, töpuðu rúmlega 1,3 milljörðum króna á árinu 2022. Það er umtalsverð aukning á tapi frá árinu áður, þegar tapið var 885 milljónir króna. Þetta kemur fram í umfjöllun á Heimildinni um málið.
05.09.2023
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tók á dögunum fyrstu skóflustungu á gröfu að framkvæmdum vegna þriðja áfanga Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Markmið framkvæmdanna er að auka umferðaröryggi, stytta ferðatíma og létta á umferð við Vatnsendaveg. Áætluð verklok eru haustið 2026
03.09.2023
Umferðin í ágúst á Hringveginum hefur ekki áður mælst meiri. Hún jókst um rúm átta prósent frá sama mánuði fyrir ári síðan en var eigi að síður heldur minni en umferðin í júlí. Nú má búast við að umferðin í ár aukist um 6-7 prósent á Hringveginum að því er fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.