18.02.2016
Sjö bílar eru komnir í lokaval á bíl ársins í Evrópu 2016. Úrslit verða tilkynnt við opnun bílasýningarinnar í Genf eftir tvær vikur.
17.02.2016
Intelligent Transport Management System (iTraMS) nefnist nýr tæknibúnaður sem þróaður hefur verið hjá Bosch í Indlandi, Þennan búnað má auðveldlega setja í alla bíla, ekki bara nýja á framleiðslustigi heldur líka eldri bíla. Með þessu kerfi í sem allra flestum bílum vonast Bosch til að stuðla að öruggari umferð og umhverfismildari.
17.02.2016
General Motors innkallar um þessar mundir um 200.000 bíla af gerðunum Saab og Saturn í N. Ameríku. Innköllunin er hluti af mun stærra máli sem er innköllun á meir en 5 milljón bílum af ýmsum tegundum og gerðum sem eiga það sameiginlegt að vera búnir loftpúðum frá japanska framleiðandanum Takata.
17.02.2016
General Motors er að hefja fjöldaframleiðslu á nýjum meðalstórum rafmagns- fólksbíl sem nefnist Chevrolet Bolt. Á bílaráðstefnu í Bochum í Þýskalandi í sl. viku greindi Mary Barra forstjóri GM frá því að senn hæfist fjöldaframleiðsla á nýjum og mjög langdrægum rafmagnsbíl hjá Opel; Opel Ampera-e. Nú er svo komið í ljós að um er að ræða einn og sama bíl undir tveimur undirmerkjum GM og verður hann framleiddur í Bandaríkjunum undir báðum nöfnum.
16.02.2016
Umferðarlögreglan í Danmörku fór dagana 1.-7. febrúar í sérstakt átak gegn aðgæsluleysi ökumanna og hjólandi í umferðinni og sektaði grimmt þá sem staðnir voru að brotum sem greinilega voru framin vegna þess að hugurinn var víðsfjarri akstrinum.
16.02.2016
Fjölnotabíllinn Skoda Roomster er ekki lengur framleiddur. Framleiðslunni var hætt í desember sl. og ólíklegt að annar fjölnotabíll leysi hann af hólmi.
16.02.2016
Ályktun stjórnar FÍB um fyrirhugaða ofurhækkun Isavia á bílastæðagjöldum send Isavia og ráðherrum fjármála og innanríkismála. Í henni er þess krafist að fyrirhugaðar hækkanir sem taka eiga gildi 1. apríl verði afturkallaðar.
15.02.2016
Jean Todt forseti FIA og sérlegur sendimaður aðalritara SÞ og Christian Friis Bach framkvæmdastjóri UNCE skora á ríkisstjórnir, almenning og bílaframleiðendur heimsins að styðja og framfylgja stefnu Sameinuðu þjóðanna í umferðaröryggismálum. Áskorunin kom fram á blaðamannafundi Efnahags- og framfarastofnunar S: UNECE í Genf í lok sl. viku.
11.02.2016
Í Noregi velta vegagerðarmenn og ráðgjafarverkfræðingar fyrir sér þeirri hugmynd að brúa tvo breiða og djúpa firði á vesturströnd Noregs með því að byggja neðansjávar-hengbrýr undir sjávarborðinu. Þetta verða mikil steinrör hangandi í strengjum neðan úr risastórum flotholtum á sjávaryfirborðinu. Sjálf vegrörin þar sem bílar bruna um á 110 km hraða eiga að verða á 20-30 metra dýpi, verði hugmyndin einhvern tíman að veruleika og spurning hvort þeir sem í bílunum aka verði ekki bullandi sjóveikir.
11.02.2016
Forstjóri Renault í Danmörku segir í samtali við bílavef dagblaðsins Politiken að það taki því ekki að reyna að selja Daciabíla í dönskum borgum og bæjum þar sem kaffihús eru fleiri en eitt.